Rósroðinn minn fór loksins að róast
Ég hef lengi glímt við rósroða og húðin mín hefur oft verið viðkvæm og í ójafnvægi.
Ég prófaði ýmislegt, keypti mér serum og fór líka í húðmeðferðir en fann ekki þann árangur sem ég var að leita eftir.
Ég vinn á skrifstofu þar sem loftið er frekar þurrt, sem hefur áhrif á húðina mína.
Annars er lífstíllinn minn frekar venjulegur, ég er meira úti á sumrin en á veturna.
Ég rakst á vörurnar frá Lovaiceland í Bónus.
Mér leist vel á þær, og verðið heillaði mig líka.
Ég ákvað að prófa vörurnar sem eru góðar fyrir rósroða húð og það var þá sem ég fór að finna mun.
Ég byrjaði að nota C-vítamín kremið og augnkremið reglulega, og bætti svo við Rósa Serum og Rósa Hreinsi Balm.
Ég fann fljótt hvað húðin varð betri, hún róaðist og fór að komast í jafnvægi.
Ég var hvorki þurr né fitug lengur, sem hafði verið vandamál hjá mér áður.
✨ Notaði ekki vörurnar í smá tíma og fann strax mun
Ég notaði ekki vörurnar í smá tíma en ég hefði betur gert það því ég fann Rósroðann spretta aftur upp.
Ég byrjaði aftur fyrir stuttu að nota vörurnar og ég finn nú þegar mun aftur.
Það tekur líklega 2–3 vikur að ná fullum árangri, en breytingin byrjar strax.
🌿 Uppáhalds vörurnar mínar
C-vítamín kremið er klárlega mitt uppáhald, ég hef notað það lengi og treysti á það.
Ég keypti mér líka nýlega varasalvann og hann er algjörlega æðislegur ✨
💰 Það sem kom mér mest á óvart
Ég átti eiginlega ekki von á því að vörur á þessu verði væru svona góðar.
Maður hefur oft hugsað að dýrt þýði betra, en það á alls ekki við hér. Þetta eru vörur sem virka og eru á verði sem allir geta leyft sér.
Lovaiceland er komið til að vera hjá mér.
Frásögn: Arna Bára Arnarsdóttir
Húðvörur Lovaiceland