„Ég sá auglýsingu fyrir C-vítamín kremið og það var ekki aftur snúið“
Saga Ástu Hreiðarsdóttur
Ég hef lengi glímt við þurra húð, bletti og hrukkur. Eins og margir aðrir var ég alltaf að prófa mig áfram og leita að vörum sem gætu hjálpað húðinni minni.
Ég átti því aldrei eitt ákveðið uppáhalds vörumerki heldur notaði einfaldlega það sem ég hafði efni á hverju sinni.
Svo einn daginn sá ég auglýsingu fyrir C-Vitamin kreminu frá LovaIceland.
Ég ákvað að gefa því séns. Og það var ekki aftur snúið.
Það sem kom mér mest á óvart var hversu fljótt ég fann mun. Eftir um það bil viku fann ég að húðin mín var farin að líða betur og líta betur út.
Í dag hef ég notað vörur frá LovaIceland í mörg ár, eiginlega alveg frá því fyrirtækið byrjaði. Með tímanum hef ég eignast nánast öll kremin og olíurnar frá þeim.
Það sem ég hef tekið mest eftir er hversu mikið húðin hefur mýkst. Hrukkurnar hafa minnkað og einn rauður þurrkublettur sem ég var með á milli augabrúnanna er alveg horfinn í dag.
Mér hefur alltaf fundist erfitt að finna húðvörur sem bæði virka vel og eru á sanngjörnu verði. Oft eru vörurnar sem maður heillast af fullar af alls konar aukaefnum, eða þá að þær sem manni líst vel á eru mjög dýrar.
Þess vegna er ég svo þakklát fyrir að hafa fundið LovaIceland.
Ef ég ætti að nefna uppáhalds vörurnar mínar þá væru það án efa:
🤍 C-Vitamin Kremið
🤍 Rósa & Hunangs Hreinsi Balm
🤍 Kókos & Argan Líkamskremið
🤍 Jojoba & Argan Líkamsolían
Mér finnst þessar vörur vera þær bestu á markaðinum.
Kuldinn á veturna getur verið erfiður fyrir húðina og ég vinn innandyra þar sem loftið er oft þurrt.
Í dag mæli ég með LovaIceland við alla sem spyrja mig um húðvörur.
Þetta eru uppáhalds húðvörurnar mínar og ég nota ekkert annað.
Ég mun klárlega halda áfram að nota vörurnar og mæla með þeim áfram.
— Ásta Hreiðarsdóttir
Húðvörur Lovaiceland