Algjör himnasending fyrir mig

🤍 Húðin sem kallaði á hjálp

Ég er með skjaldkirtilssjúkdóm sem hefur haft mikil áhrif á húðina mína. Hún hefur verið mjög þurr og viðkvæm og ég hafði lengi ekki fundið neitt sem gaf mér nægan raka.

Ég prófaði alls konar vörur í gegnum tíðina, en ekkert virtist virka. Fyrir um þremur árum síðan fór ég meira að segja að fá ofnæmisviðbrögð við nánast öllu sem ég setti á andlitið.

✨ Þegar allt breyttist:

Ég kynntist Lovaiceland í gegnum auglýsingu á Facebook. Ég sá mikið lof um vörurnar og ákvað að gefa þeim séns og það breytti öllu.

Ég byrjaði að prófa nokkrar vörur og hef síðan þá notað:
Aloe Vera & Grænt te C-vítamín krem, Retinol Eye Cream, CBD Facial Serum, Facial Scrub og Cleansing Balm.

En það var ein vara sem stóð algjörlega upp úr fyrir mig..

💫 „Algjör himnasending“

Retinol Jojoba andlitsolían var algjör himnasending fyrir mig.
Ég hef einfaldlega aldrei áður fundið svona raka og jafnvægi í húðinni minni.

Ég fann mun mjög fljótt, nánast strax eftir að ég byrjaði að nota hana. Húðin varð rólegri, mýkri og miklu heilbrigðari.

Í dag hlakka ég til að setja hana á hverju kvöldi, ásamt Retinol Næturkreminu. 🤍

Ég hef nú notað vörurnar frá Lovaiceland í um þrjú ár Verðin eru alveg geggjuð, svo æðislegt að geta keypt sér gæða vöru á góðu verði. Þær standast algjörlega samanburð við aðrar vörur að mínu mati og ekki spurning að ég mun nota vörurnar áfram.

Frásögn: Sigrún Sigurðardóttir