Ég hef notað Lovaiceland vörurnar síðan í Desember 2023 og tek eftir að hrukkur á enni hafa minnkað, hrúður á kinn horfið og hálsinn minn er sléttari. Algjör vellíðan eftir að bera á mig þessa dásemd frá þeim hver sem hún er í hvert sinn.
Ég hef verið að hreinsa mig með Túrmerik Balminum og E Vítamín hreinsinum til skiptis, nota Rósa serumið, rakakremið og augnkremið og er spennt að prófa nýja skrúbbinn sem ég var að panta mér.
Ég hef unnið fyrir stórt snyrtivörumerki í Bandaríkjunum sem mér fannst mjög góðar, en þegar ég flutti heim þá fannst mér of dýrt að versla þær og ég flakkaði á milli merkja að leita af vörum sem virka þar til ég fann Lovaiceland sem að breytti þessu algerlega fyrir mig!
Það sem er svo frábært er að ég hef fundið vöru sem ég hef efni á og get notað það sem ég vil án þess að þurfa að horfa í kostnaðinn. Loksins!
Hlakka til að bera á mig tilheyrandi krem og serum morgna og kvölds.
Svo þakklát fyrir að hafa loksins fundið það sem mér hentar.
Finnst ég öll ferskari og frískari í húðinni og fæ oft að heyra hvað ég líti vel út. Bóndinn segist sjá mun.
Maðurinn minn er farin að nota rúlluna sem eykur blóðflæðið á andlitinu, á hverju kvöldi yfir fréttunum og svo notar hann hreinsikremið, C vítamín kremið og augnkremið á morgnana
Hann segir það sama og ég að tilfinningin í húðinni sé svo fersk og frísk. Þetta er í fyrsta sinn sem hann prófar vöru dag eftir dag og ætlar að halda því áfram.
Ef ég gat fengið hann til að prófa eitthvað í fortíðinni, þá bar hann það á sig einu sinni, fyrir mig og ekki meir!
Hann er loksins að hlusta og gera sér grein fyrir því að menn þurfa jafn mikið og konur að hugsa um húðina sína.
Ég veit ég að ég er búin að finna það sem ég þarf og það er ekki aftur snúið og mér finnst svo mikilvægt að það séu ekki paraben og sulfates efni í vörunum. Langar líka að segja að þjónustan hjá LovaIceland er 100%.
Yndislegar mannverur sem eru alltaf til staðar fyrir spurningar og hjálpartips. Hingað til hef ég alltaf fengið persónulegan póst frá þeim að þakka mér fyrir kaupin. Það finnst mér mjög spes og kann að meta það.
Frásögn: Árný Börg Blandon
Húðvörur